Sannleikurinn flæðir einhvers staðar á milli

Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 15. janúar 2026

Valgeir Örn Ragnarsson, varafréttastjóri RÚV, skrifar

Því meira framboð af fréttum, fréttaskýringum og þjóðfélagsumræðu, því betra fyrir lýðræðið. Ein af stoðum lýðræðisþjóðfélaga er óumdeilanlega sterkir og fjölbreyttir fjölmiðlar. Þeir gegnumlýsa samfélagið með aðferðum vandaðrar blaðamennsku, veita stjórnvöldum aðhald og vinna í þágu almennings. Öflugir fjölmiðlar eru undirstaða trausts í samfélaginu.

Nú stöndum við hins vegar frammi fyrir mjög hnignandi fjölmiðlaumhverfi á Íslandi sem mun hafa ófyrirsjáanlegar afleiðingar fyrir samfélagið. Á sama tíma og allir fjölmiðlar eru að veikjast, fækka blaða- og fréttafólki og draga úr þjónustu sinni með einum eða öðrum hætti, er önnur risastór breyting að eiga sér stað.

Í stað hefðbundinnar fjölmiðlaumfjöllunar skellur á okkur flóðbylgja af upplýsingum á samfélagsmiðlum. Þar gildir ekki endilega því meira því betra. Við fáum stanslaust efni til okkar sem er erfitt að staðreyna. Falsaðar myndir, fölsuð myndbönd og ofgnótt skoðana. Sumar eru settar fram til að gera okkur reið og til að fá okkur til að hata hvert annað. Þetta efni er í sífellt auknum mæli búið til af gervigreind og bottum og flæðir af áður óþekktum krafti yfir okkur. Inni í öllu þessu upplýsingaflóði flæðir sannleikurinn einhvers staðar á milli. Við sjáum hann jafnvel ekki og kannski nennum við ekki að sjá hann, því við erum orðin svo mettuð af upplýsingum að við getum varla meðtekið meira í bili.

Þetta er frábær þróun fyrir þá sem hata opna og lýðræðislega umræðu sem er byggð á staðreyndum. Þeir vita að ef þú veist ekkert hvað er satt og hvað er lygi, þegar þú heldur að allt sem þú sérð, fréttir þar með taldar, sé sama ruglið og þú sérð í „feedinu“ þínu, þá hættir þú að treysta. Þegar traustið er farið þá hætta fjölmiðlar að geta sinnt hlutverki sínu. Það er afleit þróun og planið má ekki vera að sitja hjá og vona það besta.

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.