Segja RÚV gagna gegn þjónustuhlutverki sínu

admin • 6. september 2012

Allir 10 þingmenn Suðurkjördæmis hafa sent þeim Páli Magnússyni og Óðni Jónssyni bréf þar sem þeir óska eftir rökstuðningi fyrir þeirri ákvörðun að segja upp verktakasamningi við Magnús Hlyn Hreiðarsson fréttaritara á Suðurlandi og draga þannig úr fréttaþjónustu á svæðinu. Er það skoðun þingmannanna að með þessu sé RÚV að gagna gegn þjónustuskyldum sínum á svæðinu. Þetta kemur fram á fréttavef Sunnlenska.
Þess má geta að stjórnmálamenn á Alþingi töldu RÚV einnig vera að ganga gegn þjónustuhlutverki sínu á landsbyggðinni fyrir nokkrum misserum þegar svæðisútvörpin voru aflögð.
Sjá einnig hér

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.