Siðareglur í 50 ár

admin • 22. desember 2015

"Blaðamenn Íslands hafa haft yfir sér siðareglur frá 9. maí 1965 eða í hálfa öld. Þegar þessi tímamót urðu sl. vor þá voru kærð mál komin í alls 219 hjá Siðanefnd BÍ og er meðaltalið því rúmlega 4 mál á ári. Siðareglurnar hafa í raun breyst lítið frá upphafi og nýlegar umræður og tillögur um breytingar leiddu ekki til niðurstöðu. Það er hins vegar mat höfundar að í raun hafi mikið breyst – með breyttum tíðaranda, aukinni fagmennsku og umturnuðu fjölmiðlaumhverfi hefur túlkun á hinum „fábrotnu“ siðareglum breyst töluvert."  Þetta segir Friðrik Þór Guðmundsson í áhugaverðri yfirlitsgrein um siðareglur BÍ í nýjum Blaðamanni sem er þessa dagana að berast félagsmönnum í pósti. Með grein Friðriks birtist listi yfir öll mál siðanefndar ásamt stikkorðum sem gefa til kynna hverjir áttu hlut að máli og hvers eðlis málin voru.

Sjá Blaðamanninn rafrænt  hér

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.