Sigmundur ekki brotlegur

Birgir Guðmundsson • 3. febrúar 2021

Siðanefnd Blaðlamannafélags Íslands telur í úrskurði að siðareglur BÍ hafir ekki verið brotnar  í kærumáli Aldísar Schram gegn Sigmundi Erni Rúnarssyni, sjónvarpsstjóra Hringbrautar vegna viðtals Sigmundar við Bryndísi Schram um bók hennar "Brosað gegnum tárin". Í niðurstöðu nefndarinnar segir m.a.:  "Siðanefnd telur að eðlilegt að tekið sé viðtal við höfund nýútkominnar bókar og umfjöllunarefnið eigi fyllilega rétt á sér. Nefndin hefur áður tekið þá afstöðu að í viðtalsþáttum sé þess ekki krafist að andstæð sjónarmið komi fram í sama þætti, en að farið sé að siðareglum BÍ við flutning þeirra.   
Niðurstaða Siðanefndar er að spurningar kærða í umræddu viðtali brjóti ekki í bága við siðareglur BÍ."

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.