Sigríður Dögg ein í framboði til formanns

Freyja Steingrímsdóttir • 8. apríl 2026

Aðeins ein tilkynning barst skrifstofu BÍ um framboð til formanns í aðdraganda aðalfundar félagsins. Um er að ræða tilkynningu frá sitjandi formanni, Sigríði Dögg Auðunsdóttur, og verður hún því ein í kjöri.

Samkvæmt lögum félagsins þarf tilkynning um framboð til formanns að berast skrifstofunni tveimur vikum fyrir boðaðan aðalfund. Formaður er kosinn til tveggja ára í senn og sama gildir um aðra stjórnarmenn.

Aðalfundur félagsins verður haldinn þriðjudagskvöldið 21. apríl kl. 20:00 í húsakynnum félagsins að Síðumúla 23. Öllum félögum BÍ er heimilt að bjóða sig fram til annarra embætta en formanns á sjálfum fundinum.

Dagskrá aðalfundar:

  • Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt lögum félagsins
  • Skýrslur frá starfsnefndum
  • Kosningar
  • Lagabreytingar
  • Önnur mál

Frekari upplýsingar um aðalfundinn má finna hér.

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.