Sjálfhverfa hjá stórum fréttamiðlum

admin • 20. júlí 2012

Svo virðist sem mikil sjálfhverfa einkenni veftengingar (hyperlinks) hjá stórum og almennum fréttaveitum, en þessar veftengingar eiga að bæta frekari efnisatriðum og upplýsingum við fréttirnar sem þessir fréttamiðlar eru að flytja. Samkvæmt könnun Marks Coddington við Texasháskóla í Austin, Texas, eru 91% allra veftenginga (hyperlinks) hjá almennum stórum fréttaveitum í þær sjálfar, þ.e. þær tengja við efni og upplýsingar sem hafa komið fram hjá þeim áður. Hins vegar skoðaði Coddington einnig veftengingar hjá almennum sjálfstæðum bloggurum og komst að því að þeir tengja aðeins í 18% tilfella í sjálfa sig.

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.