Sjónvarpsmenning þjóðbundin í Evrópu

admin • 28. september 2012

Evrópskum sjónvarpsáhorfendum er stöðugt boðið upp á meira og fjölbreyttara sjónvarpsefni sem með einum eða öðrum hætti er styrkt eða unnið á vegum ESBþ Þrátt fyrir það virðist sjónvarpsmenning einstakra landa vera rígbundin við landamæri viðkomandi þjóðríkis. Þetta kom framm hjá talsmanni ESB þear hann kynni ársskýslu um sjónvarpsáhorf í Evrópu. Í Evrópu gildir að sjónvarpsstöðvar verða að vera með amk. 50% af efni sínu frá Evrópu, regla sem raunar gildir hér á landi líka vegna EES, og samkvæmt skýrslunni uppfylla flest ríki þessi skilyrði og gott betur en meðaltalið fyrir alla 2009 – 2010 er að 65% sjónvarpsefnis er upprunnið í Evrópu. Hins vegar er lang stærstur hluti þessa evrópska efnis í raun innlent efni í viðkokmandi landi, og aðeins 8,1% af efninu er að meðaltali frá öðrum Evrópulöndum.

Sjá einnig hér

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.