Skammar kollega sína í BNA

admin • 15. maí 2013

Scott Pelly, fréttaþulur kvöldfrétta hjá CBS sjónvarpsstöðinni í BNA, las kollegum sínum pistilinn í ræðu sem hann hélt þegar hann tók við viðurkenningu í Quinnipiac háskóla um helgina. Hann hvatti blaðamenn í Bandaríkjunum til að hætta að hugsa sífellt um að vera fyrstir með fréttirnar og forðast að nota samfélagsvefi sem upplýsingaveitur, enda væru þær lítið annað en „slúður“. „Síðustu mánuðir hafa verið erfiðir fyrir blaðamennskuna,“ sagði hann. „Við förum rangt með í hverju mikilvæga málinu á fætur öðru,“ bætti hann við og var þar að vísa í (eitt af mörgum) dæmið um skotárásina í Newton þar sem fjölmiðlar fullyrtu móðir árásarmannsins hafi verið starfsmaður skólans.

 

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.