Skilafrestur tilnefninga rennur út á morgun!
Birgir Guðmundsson • 25. janúar 2018
Minnt er á að skilafrestur tilnefninga til blaðamannaverðlauna rennur út í hádeginu á morgun, 26. janúar. Hægt er að senda inn tilnefningar til verðlaunanna til skrifstofu Blaðamannafélagsins í Síðumúla 23 á auglýstum skrifstofutíma ásamt gögnum með röksemdafærslu fyrir tilnefningunni. Jafnframt er hægt að senda tilnefningar inn rafrænt með hnappi finna má hér á forsíðunni hægra megin ofarlega.
Verðlaunin verða veitt í 15. skipti þann 3. mars næstkomandi. Tilnefningar dómnefndar verða kynntar viku fyrir afhendingu.
Eins og síðustu ár verða verðlaunin veitt í fjórum flokkum:
- Besta umfjöllun ársins 2017
- Viðtal ársins 2017
- Blaðamannaverðlaun ársins 2017
- Rannsóknarblaðamennska ársins 2017



