Skorað á Svía að framselja ekki blaðamann

Birgir Guðmundsson • 2. júlí 2020

Bæði Evrópusamband blaðamanna (EFJ) og Alþjóðasamband blaðamanna (IFJ) hafa tekið undir áskorun Blaðamannafélags Svíþjóðar (SJ) til sænskra stjórnvalda að framselja ekki tyrkneskan blaðamann sem býr í útlegð í Svíðþjóð til tyrkneskra yfirvalda. Fréttir bárust af því um síðustu helgi að framsalskrafa vegna tyrkneska blaðamannsins Levent Kenez hefði borist sænskum stjórnvöldum í mars síðast liðnum,  en málið varð ekki opinbert fyrr en 28. júní  þegar nordicmonitor.com fjallai um það.  Levent Kenez er sakaður um að hafa haft uppi meiðyrði um saksóknara og dómara í Tyrklandi í grein sem birtist í vefritinu TR724 í febrúar, eftir að dómstóll hafði dæmt fimm fjölmiðlamenn í ævilangt fangelsi fyrir þær sakir að hafa reynt að „eyða stjórnskipulaginu“ í landinu.

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.