Skýrsla: Frelsi á Internetinu minnkaði 2016

admin • 22. nóvember 2016

Samkvæmt árlegri skýrslu um frelsi á Internetinu sem Freedom House birtir var meira um takmarkanir á tjáningu á netinu í ár en í fyrra og er þetta sjötta árið í röð sem netfrelsi minnkar.  Um 2/3 þeirra sem á annað borð nota Internetið (67%) búa í ríkjum þar sem gagnrýni á stjórnvöld, her eða ráðandi fjölskyldur er háð ritskoðun.  Þá kemur í ljós að fólk sem notar samfélagsmiðla getur nú víða átt von á áður óþekktum refsingum, en stjórnvöld í 38 ríkjum hafa handtekið fólk á grundvelli einhvers sem viðkomandi setti fram á samfélagsmiðli.  Á heimsvísu búa um 27% netnotenda í ríkjum sem hafa handtekið fólk fyrir að hafa „póstað“, deilt, eða sett hlekk á efni á Facebook

Þá virðist sem stjórnvöld víða séu í vaxandi mæli að beina athyglinni að skilaboðasmáforritum s.s. WhatsApp og Telegram, en hægt er að dreifa upplýsingum með skjótum hætti eftir þessum leiðum.

 

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.