Slóvakía: Ungur rannsóknarblaðamaður og kona hans myrt

Birgir Guðmundsson • 26. febrúar 2018

Alþjóða- og Evrópusambönd blaðamanna segja það hafa verið áfall að frétta af morði hins 27 ára gamla slóvakíska rannsóknarblaðamanns Jan Kuciak, sem vann fyrir fréttavefinn Aktuality.sk. Lík hans og konu hans, Martinu Kusnirovu, fannst á heimili þeirra skammt utan við  Bratislava í gær. Kuciak hafði verið að vinna að skrifum um spillingu og skattaundanskot hátt settra embættismanna og viðskiptajöfra. Lögregla sagði í morgun að morðið tengdist líklega störfum hans sem rannsóknarblaðamanns. Slóvakía er sem kunnugt er í ESB og hefur verið talið nokkuð öruggt land fyrir blaðamenn.

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.