Starfshópur skoði gjaldtöku af erlendum efnisveitum

Auðunn Arnórsson • 24. apríl 2023

Að frumkvæði menningar- og viðskiptaráðherra hefur ríkisstjórnin ákveðið að setja á fót tvo starfshópa sem eiga að vinna tillögur sem eiga að bæta rekstraumhverfi fjölmiðla hérlendis. 

Annars vegar er um að ræða starfshóp sem á að vinna tillögur um takmörkun á umsvifum RÚV á auglýsingamarkaði og hins vegar starfshóp sem á að vinna tillögur um gjaldtöku á erlendar streymisveitur. Í báðum starfshópum munu sitja þrír fulltrúar ráðuneyta. Hópunum er ætlað að ljúka vinnu sinni eigi síðar en 1. júlí næstkomandi.  

Um starfshópinn um gjaldtöku af erlendum efnisveitum er haft eftir Lilju Alfreðsdóttur, menningar- og viðskiptaráðherra, í fréttatilkynningu frá Stjórnarráðinu að honum sé „ætlað að skoða til hvaða aðgerða er hægt að grípa í þessum efnum með hliðsjón af skuldbindingum Íslands á þessu sviði, bæði lagalega og á vettvangi OECD.“   

Þar er vísað til þess að með örri tækniþróun hefur fjölmiðlaveitum sem miðla myndefni eftir pöntun, svokölluðum streymisveitum, fjölgað til muna á síðustu árum. Stórar alþjóðlegar streymisveitur eru ráðandi á markaðnum og „búa þær við þann kost að geta verið staðsettar í einu EES ríki en beint efni sínu til annarra EES-ríkja“. 

Mikil umræða hafi verið um framlag slíkra alþjóðlegra streymisveitna til þeirra landa þar sem þjónusta af þeim er keypt, svonefnt menningarframlag. Á sama tíma hafi OECD beitt sér fyrir samræmdri nálgun þegar kemur að gjaldtöku á stafrænu efni sem fer yfir landamæri. Innlendir fjölmiðlar hafi því kallað eftir því að tekið verði til skoðunar samkeppnisumhverfi innlendra „og erlendra fjölmiðlaveitna og þá sérstaklega með tilliti til skattaumhverfis þessara aðila“.  

Starfshópunum er ætlað að ljúka vinnu sinni eigi síðar en 1. júlí n.k. svo unnt verði að leggja fram frumvörp til lagabreytinga á haustþingi ef vinna hópanna leiðir í ljós að þess gerist þörf. 

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.