Steinunn hættir á Fréttablaðinu

admin • 6. mars 2013

Steinunn Stefánsdóttir hefur hætt sem aðstoðarritstjóri á Fréttablaðinu í kjölfar breytinga sem gerðar voru á yfirstjórn ritstjórnarinnar. Nú eru tveir aðalritstjórar á blaðinu, þeir Mikael Torfason og Ólafur Stephensen. Steinunn segir í tilkynningu til samstarfsmanna að hún hætti í samkomulagi við forstjóra fyrirtækisins. RÚV hefur eftir henni að brotthvarf hennar tengist breytingum á yfirstjórn ritstjórnar enda tæplega þörf á aðstoðarritstjóra með tvo aðalritstjóra.

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.