Stjórnvöld meta áhrif gervigreindar á upplýsingaóreiðu

Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 21. janúar 2026

Erla Hlynsdóttir skrifar

Fjölmiðlanefnd og samstarfsaðilar

Áætlunin samanstendur af tuttugu aðgerðum sem skipt er niður í fimm flokka – kallaðir grunnstoðir – en gerð ofangreindrar skýrslu fellur undir flokkinn Gervigreind í allra þágu. Í þeirri grunnstoð er lögð áhersla á að þróun, innleiðing og notkun gervigreindar samræmist lýðræðislegum gildum, mannréttindum og samfélagslegri ábyrgð, auk mats á siðferðislegum og samfélagslegum álitamálum.

Greining á áhrifum gervigreindar á lýðræðislega umræðu er ein af þessum tuttugu aðgerðum og fól ráðuneytið Fjölmiðlanefnd framkvæmd hennar, í samstarfi við utanríkisráðuneytið, dómsmálaráðuneytið, CERT-ÍS, samráðshóp um vernd einstaklinga í aðdraganda kosninga og fleiri aðila. Aðgerðin snýr þannig ekki eingöngu að tæknilegum þáttum, heldur beint að forsendum opinberrar umræðu, upplýsingaumhverfis og trausts í lýðræðislegu samfélagi.

Stödd í miðri gervigreindarbyltingu

Markmið aðgerðarinnar er að treysta öryggi lýðræðislegra innviða og efla viðnámsþrótt lýðræðismenningar. Þar verða einnig greind áhrif gervigreindar á skoðanamyndun og kosningahegðun. Meðal annars verður horft til upplýsingaóreiðu, áróðurstækni og utanaðkomandi afskipta af lýðræðislegum ákvarðanatökuferlum. Þá verður kortlögð innleiðing tækninnar í starfsemi skráðra stjórnmálasamtaka með það fyrir augum að móta almenn viðmið og leiðbeiningar um gagnsæi og ábyrga nýtingu gervigreindar í stjórnmálastarfi. Afurð þessarar vinnu er skýrslan sem samkvæmt áætlun kemur út í haust.

„Við erum stödd í miðri gervigreindarbyltingu sem mun hafa gríðarleg áhrif á samfélag okkar til framtíðar,“ sagði Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, þegar aðgerðaáætlunin var kynnt.

Auk gervigreindar í allra þágu eru grunnstoðirnar samkvæmt skýrslunni samkeppnishæft atvinnulíf, menntun í takt við tímann, nýjar leiðir í opinberri þjónustu og heilbrigðiskerfi framtíðarinnar, og heyrir ábyrgð á aðgerðunum undir ólík ráðuneyti.

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.