Stofnfundur deildar miðlunar og samskipta 14. maí kl.17:30

Eyrún Magnúsdóttir • 5. maí 2025

Stofnfundur deildar miðlunar og samskipta innan BÍ verður haldinn miðvikudaginn 14. maí kl.17:30 í húsakynnum BÍ, Síðumúla 23. Deild miðlunar og samskipta á að verða faglegur vettvangur fyrir félagsfólk BÍ sem starfar við hvers kyns miðlun upplýsinga, almannatengsl eða samskipti.

Kosið verður í stjórn deildarinnar á fundinum og vinna hafin við gerð starfsáætlunar. Þau sem hafa áhuga á að taka sæti í stjórn eða koma að undirbúningi og uppbyggingu deildarinnar geta haft samband með því að senda póst á press@press.is. Ekki er þó nauðsynlegt að tilkynna framboð fyrirfram. 

Blaðamannafélag Íslands telur yfir 600 félaga, þar af flestir starfandi sem blaðamenn eða ljósmyndarar á fjölmiðlum eða sjálfstætt. Vaxandi hluti félaga hefur snúið sér að störfum við samskipti, miðlun og almannatengsl, ýmist sem sjálfstæðir sérfræðingar, ráðgjafar eða upplýsingafulltrúar fyrirtækja og stofnana. 

Félagar í BÍ sem starfa við samskipti, almannatengsl eða miðlun hafa til þessa ekki haft sameiginlegt athvarf fyrir faglega umræðu. Hins vegar hefur sífellt meiri krafa verið gerð um skýra stefnu í upplýsingagjöf, gagnsæi og fagmennsku í samskiptum við fjölmiðla og almenning.

Með stofnun sérstakrar deildar miðlunar og samskipta innan Blaðamannafélagsins skapast tækifæri til:

  • efla faglega umræðu og vinna að fræðslumálum er tengjast greininni,
  • móta faglegar siðareglur,
  • skilgreina starfssvið og
  • koma á formlegum umræðuvettvangi.

Allt félagsfólk sem starfar við miðlun og samskipti er boðið velkomið á stofnfund deildarinnar.

Aðrir sem starfa á þessu sviði og vilja taka þátt í starfi deildarinnar geta sótt um aðild að BÍ.


Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.