Styrkir til staðbundinna landsbyggðarmiðla

Auðunn Arnórsson • 29. nóvember 2022

Staðbundnir fjölmiðlar utan höfuðborgarsvæðisins geta fram til 11. desember næstkomandi sótt um styrk til menningar- og viðskiptaráðuneytisins, í samræmi við reglugerð  nr. 1265/2022 um styrki til staðbundinna fjölmiðla: 

„Markmið með styrkveitingum til einkarekinna staðbundinna fjölmiðla utan höfuðborgarsvæðisins er að efla starfsemi þeirra enda gegni þeir mikilvægu hlutverki við að tryggja aðgengi almennings að upplýsingum um menningar- og samfélagsmál og styðji með þeim hætti við lýðræðisþátttöku og menningarstarf .“ (3. gr. reglna  nr. 1265/2022 um styrki til staðbundinna fjölmiðla ).

Samkvæmt auglýsingu ráðuneytisins eru í ár til úthlutunar 5 milljónir króna: 2,5 m.kr. frá menningar- og viðskiptaráðuneyti og 2,5 m.kr. frá innviðaráðuneyti vegna aðgerðar C.07 í byggðaáætlun,  Efling fjölmiðlunar í héraði. Höfuðborgarsvæðið   nær yfir sveitarfélögin Reykjavíkurborg, Kópavogsbæ, Hafnarfjarðarkaupstað, Garðabæ, Seltjarnarnesbæ og Mosfellsbæ.

Umsækjendum er bent á að kynna sér ákvæði  reglna nr. 1265/2022  um styrki til staðbundinna fjölmiðla. Nánar hér. 

 

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.