Sumarlokun á skrifstofu BÍ

Freyja Steingrímsdóttir • 30. júní 2025

Félagsfólk athugið að skrifstofa Blaðamannafélagsins verður lokuð frá 14. júlí til og með 8. ágúst vegna sumarleyfa starfsfólks.

Orlofshús: Ekki þarf lengur að sækja lykla á skrifstofu BÍ heldur eru komin lyklabox í öll orlofshús og fá leigjendur upplýsingar um það sendar í tölvupósti. Ef eitthvað kemur upp á meðan dvöl stendur í orlofshúsi er hægt að hringja í umsjónarmann en símanúmer umsjónarmanna eru einnig send leigjendum í upplýsingapósti.

Styrkir: Umsóknir um styrki og sjúkradagpeninga sem berast eftir 10. júlí bíða afgreiðslu þar til skrifstofa opnar á ný. Áfram verður hægt að sækja um styrki með rafrænum hætti. Samþykktir sjúkradagpeningar verða þó greiddir út 31. júlí.

Kjara- og réttindamál: Ef málið þolir alls enga bið er hægt að ná í formann BÍ, Sigríði Dögg, í síma 894-9050 eða framkvæmdastjóra BÍ, Freyju Steingrímsdóttur, í síma 616-7498.

Föstudagskaffi: Föstudagskaffið fellur niður á meðan sumarlokun stendur yfir og hefst að nýju föstudaginn 15. ágúst.

Starfsfólk BÍ óskar félagsfólki ánægjulegs sumars.

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.