Tæknibreytingar og blaðamennska

admin • 14. maí 2012

World Editors Forum, sem er hópur innan Alþjóðasamtaka blaðaútgefenda fundaði á svokölluðum yfirmannafundi ritstjórna (Newsroom Summit) í Hamborg á föstudag. Þar var sérstaklega verið að fjalla um þær breytingar sem ritstjórnir og fréttastofur standa frammi fyrir vegna örra tæknibreytinga og nýrra miðlunarmöguleika, sem og breyttrar notkunar fólks á fjölmiðlum. Larry Kilman hefur á bloggi sínu tekið saman  nokkur ummæli helstu forustumanna á þessu sviði sem féllu á fundinum. Ein ummælin eru frá Paul Lewis verkefnaritstjóra hjá Guardian í Bretlandi. Hann segir: „Aldrei fyrr höfum við haft aðgang að eins miklum upplýsingum og það hafa aldrei áður hafa möguleikarnir til að stunda blaðamennsku verið jafn ótakmarkaðir“.   Sjá meira hér

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.