Tæpum helmingi íslenskra blaðamanna hefur verið hótað eða ógnað

Birgir Guðmundsson • 21. júní 2021

Aðeins rétt liðlega helmingur svarenda í nýlegri könnun rannsóknarhóps í verkefninu WJS (Worlds of Journalism Study) á meðal íslenskra blaða- og fréttamanna, eða 53%, segir að þeim hafi aldrei verið ógnað eða hótað í starfi sínu. Þetta þýðir að mjög mörgum hefur verið ógnað eða hótað, en um 40% segja að það hafi gerst sjaldan eða stundum og 7% oft eða mjög oft.  Svipaða sögu er að segja þegar spurt var hvort siðferði blaðamanna hafi verið dregið í efa, en um 60% blaðamanna hafa upplifað slíkt einhvern tíma. Þetta er meðal þess sem kemur fram í grein um ógnanir gegn fjölmiðlafólki í Blaðamanni, sem nú er í prentun og kemur til félagsmanna BÍ í pósti nú í vikunni.  Ýmislegt fleira má finna í blaðinu, m.a. umfjöllun um Blaðamannaminni og málþing í Norræna húsinu og greinar eftir formann og framkvæmdastjóra BÍ.  Þegar er komin hér inn á vefsvæðið pdf útgáfa af blaðinu og má nálgast hana hér.

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.