Þrjú áhugaverð námskeið hjá NJC

admin • 4. janúar 2013

Á árinu 2013 býður Norræni blaðamannaskólinn í Árósum, NJC, íslenskum og öðrum norrænum blaðamönnum upp á þrjú stór og spennandi námskeið. Íslenskir blaðamenn geta sótt um styrk til endurmenntunarsjóðs BÍ til að dekka hluta kostnaðar. Námskeiðin sem nú hafa verið auglýst eru þessi:

 

NJC meningarnámskeið:

Snjallsímar og spjaldtölvur eru verkfæri sem meningarblaðamenn framtíðarinnar munu í vaxandi mæli reiða sig á. Nýjungar menningarlífsins gera fyrst vart við sig í slíkum gáttum og birtast með breyttum hætti í hinu menningarlega almannarými. Þetta verður meðal umföllunarefna á þessu námskeiði sem fer fram í London 8.-12. apríl. Umsóknarfrestur er til 1. febrúar.

 

Hið “heita” Norður-Íshafssvæði: ?

Augur heimsins beinastnú að norðurskautinu vegna loftslagsbreytinga þar sem ísinn bráðnar hraðar en menn áttu von á. Þetta námskeið fjallar um staðreyndir og kenningar um þetta mikilvæga mál og fer námskeiðið fram í Tromsö og Svalbarða 26. maí – 2. júní. Umsóknarfrestur er til 1. febrúar.


Aðalkúrs Árósaskólans: Frá Íslandi til Bandaríkjanna

Sex vikna námskeið á ferðalagi. Árósar í Danmörku (3 vikur), Ísland (1 vika), New York og Washington (1 vika), St. Petersburg og Florida (1 vika). Þema námskeiðsins er “hlutverk Norðurlanda í nýrri heimsskipan”. Samhliða verða kynnt til sögunnar aðferðir við að nota hin nýju verkfæri sem blaðamönnum stendur til boða að nýta við vinnu sína með nýrri tækni. Námskeiðið hefst 2. September 2013 og skráningarfrestur er til 4. apríl.

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.