Þrýst á yfirvöld á Möltu

Birgir Guðmundsson • 23. mars 2018

Evrópusamband blaðamanna (EFJ) ásamt  sex öðrum samtökum sendi í dag frá sér opið bréf til erlendra sendimanna á Möltu þar sem þeir eru hvattir til að fylgjast með og spyrjast fyrir um rannsóknina á morðinu á Daphne Caruana Galizia.  Í bréfinu segir m.a. að „þinn áhugi og eftirgrennslan um mál þetta hefur áhrif á þau viðmið og forsæmi sem gefa til kynna hvað er ásættanlegt innan Evrópusambandsins.“

Sem kunnugt er var Daphne Caruana Galizia blaðamaður og bloggari sem skrifaði um spillingu í heimalandi sínu og lét ítrekaðar hótanir ekki stoppa sig. Hún hélt áfram skrifum sínum þrátt fyrir að lögregla á Möltu stæði sig ekki í að veita henni nauðsynlega vernd, en hún var mynt þegar bifreið hennar var sprengd upp í október í fyrra.

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.