Tilnefningafrestur Blaðamannaverðlauna 17. janúar

admin • 7. janúar 2014

Blaðamannaverðlaun Blaðamannafélags Íslands verða veitt í 11. skipti þann 15. febrúar næstkomandi. Tilnefningar dómnefndar verða kynntar viku fyrir afhendingu en  skilafrestur tilnefninga til dómnefndar er föstudagurinn 17. janúar.

 Eins og á síðasta ári verða verðlaunin veitt í fjórum flokkum en þeir eru þessir:

• Besta umfjöllun ársins 2013
• Viðtal ársins 2013
• Rannsóknarblaðamennska ársins 2013
• Blaðamannaverðlaun ársins 2013

Hægt er að senda inn tilnefningar  til verðlaunanna á skrifstofu Blaðamannafélagsins í Síðumúla  23 á auglýstum skrifstofutíma ásamt gögnum með röksemdafærslu fyrir tilnefningunni. Jafnframt er hægt að tilnefna með rafrænum hætti.
Tilnefningar dómnefndar verða síðan gerðar kunnar í laugardaginn 8. febrúar og viku síðar, þann 15. febrúar  verða verðlaunin sjálf afhent.

 

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.