Tilnefningafrestur fjölmiðlaverðlauna 20. ágúst

Birgir Guðmundsson • 10. ágúst 2020

Frestur til að skila inn tilnefningum til umhverfis- og auðlindaráðuneytisis til verðlauna sem afhent verða á Degi íslenskrar náttúru rennur út þann 20 ágúst næst komandi. Annars vegar er um að ræða Fjölmiðlaverðlaun umhverfis- og auðlindaráðuneytisins og hins vegar Náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti.  

Fjölmiðlaverðlaunum umhverfis- og auðlindaráðuneytisins er ætlað að hvetja til umfjöllunar um umhverfi og náttúru, hvort heldur er í því skyni að vekja athygli á einstakri náttúru landsins, benda á þær ógnir sem steðja að umhverfi og náttúru eða mikilvægi þess að vernda og verja umhverfi og náttúru til framtíðar.

Verðlaunin geta hlotið fjölmiðill, ritstjórn, blaða- eða fréttamaður, dagskrárgerðarfólk, ljósmyndari eða rithöfundur sem hefur skarað fram úr með umfjöllun sinni um umhverfismál og/eða íslenska náttúru undangengna tólf mánuði (tímabilið ágúst – ágúst). Til greina koma einstök verkefni eða heildarumfjöllun um náttúru og umhverfismál.

Þriggja manna dómnefnd skipuð fagfólki á sviði fjölmiðla velur vinningshafa úr innsendum tilnefningum en auk þess hefur dómnefnd svigrúm til að taka til skoðunar fjölmiðlaumfjöllun um umhverfi og náttúru utan tilnefninga.

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.