Tilnefningafrestur rennur út á föstudag

admin • 14. janúar 2014

Rétt er að minna á að frestur til að skila inn tilnefningum til Blaðamannaverðlauna fyrir árið 2013 rennur út nú fyrir helgina, en fresturinn er til kl 12:00 föstudaginn 17. janúar 2014. Tilnefningar ásamt fylgigögnum skulu annað hvort berast til skrifstofu Blaðamannafélagsins, Síðumúla 23, Reykjavík eða vera skilað rafrænt á sérstöku tilnefningarformi sem finna má með því að smella á hnappinn "Tilnefnið hér" , sem er hér til hliðar.

Eins og á síðasta ári verða verðlaunin veitt í fjórum flokkum en þeir eru þessir:

• Besta umfjöllun ársins 2013
• Viðtal ársins 2013
• Rannsóknarblaðamennska ársins 2013
• Blaðamannaverðlaun ársins 2013

Tilnefningar dómnefndar verða síðan gerðar kunnar í laugardaginn 8. febrúar og viku síðar, þann 15. febrúar verða verðlaunin sjálf afhent.

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.