Blaðamannaverðlaun: Tilnefningarfrestur til 26. janúar!
Verðlaunanefnd Blaðamannaverðlauna BÍ minnir á að frestur til að tilnefna til Blaðamannaverðlauna fyrir árið 2017, er 26. janúar næst komandi, en verðlaunin verða veitt í 15. skipti þann 3. mars næstkomandi. Tilnefningar dómnefndar verða kynntar viku fyrir afhendingu en skilafrestur tilnefninga til dómnefndar er kl. 12 á hádegi föstudaginn 26. janúar 2017.
Eins og síðustu ár verða verðlaunin veitt í fjórum flokkum:
- Besta umfjöllun ársins 2017
- Viðtal ársins 2017
- Blaðamannaverðlaun ársins 2017
- Rannsóknarblaðamennska ársins 2017
Hægt er að senda inn tilnefningar til verðlaunanna til skrifstofu Blaðamannafélagsins í Síðumúla 23 á auglýstum skrifstofutíma ásamt gögnum með röksemdafærslu fyrir tilnefningunni. Jafnframt er hægt að senda tilnefningar inn rafrænt með hnappi finna má hér á síðunni hægra megin.
Tilnefningar dómnefndar verða gerðar kunnar laugardaginn 24. febrúar. Viku síðar, þann 3. mars, verða verðlaunin sjálf afhent.



