Topp námskeið í sjónvarpsfrásögn

admin • 6. október 2014

 Í haust gefst íslenskum blaðamönnum tækifæri til að setjast á námskeið með einum af reyndasta sjónvarpsmanni Danmenrkur, Torben Schou.   Námskeiðið heitir frásögn í sjónvarpi (TV-storytelling) og verður haldið í Reykjavík dagana 22.-23. nóvember. Þar miðlar Torben Schou af reynslu sinni á sviði   gerða heimildamynda, frétta, írótta og skemmtunar fyrir sjónvarp.   Það er Norræni blaðamannaskólinn NJC sem býður þessi námskeið og Endurmenntunarsjóður Blaðamannafélagins veitir styrki til félagsmanna vegna þessa námskeiðs.    Aðgangur er takmarkaður á námskeiðið og allar nánari upplýsingar veitir Sigrún Stefánsdóttir, sviðsforseti hug- og félagsvísindadeildar HA og umsóknir um setu á námskeiðinu ættu einnig að berast til hennar. Sigrún hefur netfangið sigruns@unak.is

Sjá einnig  bls1.pdf   bls.2.pdf

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.