Traust til fjölmiðla eykst

admin • 29. október 2014

Traust á fjölmiðlum hefur aukist talsvert milli ára og mælist nú í nýrri könnun MMR 18,6% en var 12,7% í fyrra og 11% árið 2012. Þrátt fyrir að traustið hafi verið að aukast eru þetta lágar tölur eins og sjá má ef þær eru bornar saman við traust til RÚV sem mælist nú 51,3% en hefur þó dalað um eitt prósentustig frá því í fyrra.  Enn sem fyrr er það lögreglan sem mælist með mest traust en næst mest traust mælist til Háskóla Íslands og þá til Háskólans í Reykjavík, Ríkisútvarpsins og Landsvirkjunar. Fæstir sögðust bera mikið traust til bankakerfisins, Alþingis, Fjármálaeftirlitsins og lífeyrissjóðanna.

 

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.