TV2 í Danmörku með pósthólf fyrir uppljóstrara

admin • 10. febrúar 2015

Sjónvarpsstöðin TV2 í Danmörku hefur nú opnað sérstakt dulkóðað pósthólf   fyrir uppljóstrara.   Uppruna gagna sem skilað er í þetta pósthólf mun ekki hægt að rekja og hefur stöðin sett af stað ákveðna kynningarherferð af þessu tilefni og til þess að vinna tiltrú þeirra sem hugsanlega búa yfir upplýsingum sem varða almannaheill en treysta sér ekki til að koma á framfæri undir nafni. Meðal annars hefur TV2 gefið út myndband og sett upp sérstaka síðu þar sem kynning er á mikilvægi og eðli uppljóstrunar. Myndbandið má sjá hér að neðan.

 

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.