Tyrkland: Sjö blaðamenn látnir lausir

Birgir Guðmundsson • 31. júlí 2017

Sjö blaðamenn sem sátu í fangelsi í Tyrklandi voru á föstudag látnir lausir. Þeir voru hluti af 17 blaðamanna hópi dagblaðsins Cumhuriyet, sem sætir ákæru fyrir stuðning við PKK – flokk Kúrda og fyrir að vera samsekir um þátttöku í misheppnaðri tilraun til stjórnarbyltingar á sínum tíma.  Af þessu 17 manna hópi voru 12 blaðamenn í fangelsi þannig að enn sitja inni fimm blaðamenn. 

Alþjóðlegur hópur fólks frá fagfélögum og mannréttindasamtökum hefur fylgst með málatilbúnaðinum gegn 17 menningunum og segir í yfirlýsingu að ákærur séu illa rökstuddur sparðatíningur sem augljóslega sé settur fram til að styðja fyrirfram ákveðna niðurstöðu.

Philippe Leruth, forseti Alþjóðasambands blaðamanna (IFJ), segir að blaðamenn og alþjóðasamfélagið hafi vissulega varpað öndinni aðeins léttar við fréttir föstudagsins, en að enn séu hundruð blaðamanna bak við lás og slá.  „Við krefjumst þess að stjórn Erdogans forseta stöðvi nú þegar glæpavæðingu og ofsóknir gegn blaðamönnum í Tyrklandi og láti lausa alla þá sem enn séu í haldi.“

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.