Umsóknarfrestur um námsdvöl í Berlín framlengdur

admin • 19. febrúar 2015

Frjálsi háskólinn í Berlín hefur  auglýst eftir umsóknum um námsdvöl í Berlín fyrir reynda blaðamenn í Evrópu eða í Bandaríkjum. Umsóknarfrestur sem áður hafði verið auglýstur til 28. febrúar  hefur nú verið framlengdur til 31.mars 2015.

Um er að ræða styrk til dvalar við Frjálsa háskólann eða Freie Universität. Blaðamenn geta fengið tækifæri til tveggja anna dvalar við Freie Universitaet á meðan þeir eru í leyfi frá stöðum sínum í heimalandinu. Prógrammið hefst í október 2015og stendur fram í júlí 2016.

Einu skilyrðin sem uppfylla þarf er að viðkomandi sé starfandi blaðamaður og að hann hyggist vinna að fræðilegu verkefni á sviði blaðamennsku. Fjárhagslegi styrkurinn nemur um 1.500 evrum á mánuði en getur þó verið meiri eða minni eftir því hvers konar styrk er um að ræða..
Sjá frekari upplýsingar hér

 

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.