Upplýsingaóreiða á ófriðartímum - hádegismálþing

Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 17. maí 2022

Málstofa, miðvikudaginn 18. maí, kl. 12:00 – 13:00, í sal Blaðamannafélags Íslands, Síðumúla 23

Upplýsingaóreiða á ófriðartímum  er yfirskrift málstofu sem Háskólinn á Bifröst heldur miðvikudaginn 18. maí nk. í samstarfi við Blaðamannafélag Íslands og Fjölmiðlanefnd. Upplýsingaóreiða hefur farið vaxandi undanfarinn áratug. Þessi varhugaverða þróun, sem rekja má m.a. til aukinnar útbreiðslu samfélagsmiðlunar, hefur nú snúist til enn verri vegar með innrás Rússa í Úkraínu. Á málstofunni verður fjallað um þá alvarlega stöðu sem er uppi og líkleg áhrif á vestræn lýðræðiskerfi, m.a. út frá meginreglunni um mikilvægi lýðræðislegrar og gagnsæjar umræðu.

Frummælendur eru:

  • Elfa Ýr Gylfadóttir, framkvæmdastjóri fjölmiðlanefndar
  • Eiríkur Bergmann, prófessor við Háskólann á Bifröst
  • Sigríður Dögg Auðunsdóttir, formaður Blaðamannafélags Íslands

Fyrirspurnum og umræðum í málstofulok stýrir Njörður Sigurjónsson, prófessor og forseti félagsvísindadeildar Háskólans á Bifröst. Málstofan er opin öllum og er þátttakendum að kostnaðarlausu. Áhugasömum er vinsamlegast bent á að skrá sig.

Málþinginu verður streymt á press.is og Facebooksíðum Bifrastar og BÍ.

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.