Veitum lítinn alþjóðlegan stuðning við fjölmiðlafrelsi

Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 29. janúar 2026

Ísland er í 19. sæti af 30 ríkjum í nýrri mælingu sem metur hversu virkan stuðning ríki veita til fjölmiðlafrelsis á alþjóðavettvangi, IMFS (e. The Index on International Media Freedom Support). Ísland fær 8 stig samtals, sem setur landið í lægsta flokk mælingarinnar, svokallaðan bronsflokk sem nær til ríkja með 0-10 stig. IMFS-mælingin metur ekki stöðu fjölmiðlafrelsis innan ríkja heldur hvernig þau styðja við fjölmiðlafrelsi utan eigin landamæra.

IMFS-mælingin var sett á laggirnar í ljósi versnandi stöðu fjölmiðlafrelsis á heimsvísu. Í inngangi skýrslu um niðurstöðurnar er vísað til gagna frá Blaðamönnum án landamæra sem sýna að starfsskilyrði blaðamanna hafa ekki verið verri í yfir tvo áratugi. IMFS-mælingin er unnin af sjálfstæðu rannsóknarteymi við tvo breska háskóla; City St George’s, University of London og University of East Anglia, og er ætlað að varpa ljósi á formlegan og skjalfestan stuðning ríkja við fjölmiðlafrelsi í alþjóðlegu samstarfi.

IMFS-mælingin byggir á þremur meginflokkum. Diplómatískur stuðningur metur leiðtogahlutverk ríkja í sameiginlegum alþjóðlegum aðgerðum, aðild þeirra á alþjóðlegum samstarfsvettvangi og opinbera málsvörn í þágu fjölmiðlafrelsis. Í þessum flokki fær Ísland 2 stig: engin stig fyrir leiðtogahlutverk, eitt stig fyrir aðild og eitt stig fyrir opinbera málsvörn.

Fjárhagslegur stuðningur mælir framlög til fjölmiðlaþróunar, hvort ríki standi við skuldbindingar sínar og þátttöku þeirra í sameiginlegum fjölþjóðlegum sjóðum. Ísland fær 6 stig í þessum flokki og stig í öllum undirþáttum.

Þriðji flokkurinn, öryggi og vernd blaðamanna, mælir hvort ríki bjóði upp á formleg úrræði fyrir blaðamenn í hættu eða útlegð. Þar fær Ísland núll stig.

Samkvæmt IMFS-mælingunni eru Danmörk, Finnland og Ísland öll í bronsflokki en Ísland og Finnland deila 19. sætinu, neðst Norðurlanda. Noregur er í silfurflokki, en Svíþjóð er í 2. sæti listans og fellur þar með í gullflokk. Öll Norðurlöndin fá núll stig í öryggi og vernd blaðamanna.

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.