Verðlaunaljósmyndarinn John Moore á Íslandi
Bandaríski ljósmyndarinn John Moore hélt á dögunum fyrirlestur fyrir félaga í Blaðaljósmyndarafélaginu og aðra áhugasama, en Moore hefur meðal annars hlotið Pullitzer-verðlaun, World Press Photo-verðlaun (fjórum sinnum!) og fleiri viðurkenningar fyrir ljósmyndir sínar.
Moore var hingað kominn til að vera yfirdómari í keppninni Myndir ársins. Úrslit í keppninni verða reyndar ekki tilkynnt fyrr en í lok apríl, þegar sýningin Myndir ársins verður opnuð. Þá kemur í ljós hvaða ljósmyndarar hljóta viðurkenningar fyrir bestu myndir liðins árs á Íslandi.
John hélt fyrirlestur undir nafninu Beyond the Frame , þar sem hann fór yfir mörg af sínum helstu ljósmyndaverkefnum, mestmegnis frá ferli sínum sem ljósmyndari fyrir AP og Getty Images þar sem hann starfar núna. Myndirnar voru afar fjölbreyttar; frá Íraksstríðinu, árum hans í Pakistan til innflytjendavandamála í Bandaríkjunum og fleiri stöðum sem hann hefur starfað á.
Héðan hélt hann svo til Úkraínu þar sem hann mun mynda á vígstöðvunum fyrir Getty, en þetta er önnur ferð hans þangað.



