Vertu með! Óskað eftir tilnefningum í embætti
Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 27. mars 2024
Á aðalfundi BÍ þann 16. apríl verður kosið í ýmsar stjórnir og nefndir Blaðamannafélags Íslands. Við erum að leita að fólki með brennandi áhuga á starfi félagsins og langar að taka þátt í að efla blaðamennsku og fjölmiðlun og standa vörð um hagsmuni stéttarinnar.
Embætti sem óskað er eftir tilnefningum í eru:
Í stjórn BÍ:
- Formaður til tveggja ára – (kosinn sérstaklega í rafrænni kosningu. Frestur til að skila inn framboði til formanns er til 2. apríl.)
- Tveir aðalmenn í stjórn til tveggja ára
- Aðalmaður í stjórn til eins árs
- Varamaður í stjórn til eins árs
Í samningaráð:
- Tveir varamenn
Í siðanefnd:
- Einn varamaður
Í stjórn Menningar- og orlofshúsasjóðs:
- Einn varamaður
Í stjórn Styrktarsjóðs:
- Tveir varamenn
Í kjörnefnd:
- Þrír fulltrúar
Skoðunarmenn reikninga:
- Tveir aðalmenn og einn varamaður
Áhugasöm eru hvött til að senda póst á bi@press.is og lýsa áhuga á tilteknum embættum.
Nánari upplýsingar um störf sjóða og nefnda veita formenn stjórna og nefnda. Sjá nánar um skipan stjórna og nefnda á press.is



