Viðskiptablaðið: Samningur samþykktur

Birgir Guðmundsson • 26. mars 2020

Kjarasamningur Blaðamannafélags Íslands við Myllusetur, rekstraraðila Viðskiptablaðsins, var kynntur og samþykktur með öllum greiddum atkvæðum á fundi í hádeginu í dag. 

Á kjörskrá voru 11 og greiddu 8 atkvæði eða 73% og samþykktu allir samningnn.

Samningurinn er afturvikur frá 1. mars síðastliðnum og er í öllum aðalatriðum samhljóða almennum kjarasamningi Blaðamannafélags Íslands við Samtök atvinnulífsins, sem undirritaður í síðustu viku, nema hvað snertir sérákvæði hvað varðar framsal á höfundarrétti.

Atkvæðagreiðsla um kjarasamning BÍ og SA stendur nú yfir og lýkur á hádegi á morgun, föstudag.  Hægt er að greiða atkvæði á sérstökum tengli á heimasíðu BÍ.

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.