Vika fjölmiðlalæsis

Auðunn Arnórsson • 14. febrúar 2023

Sérstök fræðsluvika tileinkuð upplýsinga- og miðlalæsi er nú haldin í fyrsta skipti á Íslandi, þ.e. dagana 13.-17. febrúar. Fordæmi eru fyrir slíkum vikum í öðrum löndum og hefur vinnuhópurinn sem stendur að verkefninu, svonefnt tengslanet um upplýsinga- og miðlalæsi, verið í samstarfi við KAVI í Finnlandi og Medietilsynet í Noregi við undirbúning. Markmiðið mun vera að gera vikuna að árlegum viðburði þar sem lögð verði áhersla á vitundarvakningu á mikilvægi upplýsinga- og miðlalæsis ásamt því að bjóða upp á nýtt fræðsluefni með mismunandi þema milli ára. 

Í tilefni að upplýsinga- og miðlalæsisvikunni hefur tengslanetið opnað nýjan vef tileinkaðan viðfangsefninu. 

Málþing í Grósku 16. febrúar

Hápunktur dagskrár upplýsinga- og miðlalæsisvikunnar verður málþing sem fer fram í fyrirlestrarsal Grósku í Vatnsmýri fimmtudaginn 16. febrúar kl. 9:00-12:00. Þar munu sérfræðingar á mismunandi sviðum miðlalæsis (upplýsinga-, mynd- og fjölmiðlalæsis) vera með erindi. Málþingið verður aðgengilegt í streymi (á vef Fjölmiðlanefndar) fyrir þau sem komast ekki á staðinn. 

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra mun opna málþingið með ávarpi, en aðalfyrirlesarinn verður Stephanie Comey. Hún er sérfræðingur á sviði miðlalæsis og aðstoðarforstjóri írsku fjölmiðlastofnunarinnar (BAI) en það þykir áhugavert að líta sérstaklega til þeirra þar sem fyrirtæki á borð við Meta og Google eru með Evrópuhöfuðstöðvar sínar á Írlandi og falla því undir eftirlit þar. Á málþinginu munu síðan ýmsir sérfræðingar á sviði upplýsinga-, mynd- og miðlalæsis stíga á svið og miðla af þekkingu sinni ásamt því að kynna niðurstöður úr nýlegum rannsóknum. Þá mun málþinginu ljúka með pallborðsumræðum þar sem miðlalæsi verður rætt útfrá ýmsum hliðum. 

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.