Hafna tillögu um þak á blaðastyrki til einstakra útgáfufyrirtækja

admin • 22. apríl 2014

"Við búum því miður við ríkisstjórn sem vinnur gegn frjálsum fjölmiðlum en ekki með okkur. Nú þegar við stöndum frammi fyrir grimmilegum samdráttaraðgerum á ritstjórnum landsins telur menningarmálaráðherra því miður ástæðu til að bæta enn á vonleysi og svartsýni í greininni,“ segir formaður norska Blaðamannafélagsins Thomas Spence. Tilefnið er að Torhild Widvei, menningarmálaráðherra, hefur lagt fram tillögu á Stórþinginu um að setja þak á þá blaðastyrki sem hvert fjölmiðlafyrirtæki getur fengið. Þetta þak hefur verið sett við 40 milljónir norskra króna á ári (um 800 milljónir ísl.kr) og mun þetta að öllum líkindum hafa mjög afdrifaríkar afleiðngar fyrir útgáfu blaðanna Vårt land og Dagsavisen. Thomas Spence segir ríkisstjórn Noregs hafa sýnt fjandsamlega afstöðu til frjálsrar fjölmiðlunar og það sjónarmið ekki njóta skilnings að blaðamennska væri lýðræðismál en ekki endilega eingöngnu spurning um rekstur.

 

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.