Vinnustöðvun í 12 tíma

Birgir Guðmundsson • 28. nóvember 2019

Ekki náðist samkomulag á fundi samninganefndar BÍ og  Samtaka atvinnulífsins hjá ríkissáttasemjara í  dag. Því mun boðuð  vinnustöðvun vefblaðamanna, ljósmyndara og tökumanna taka gildi á morgun. Vinnustöðvunin mun að þessu sinni standa í 12 tíma, frá kl 10.00 í fyrramálið og fram til 22.00 annað kvöld. Ekki er boðaður samningafundur fyrr en á þriðjudag, en að sögn Hjálmars Jónssonar virðist vera pattstaða þar sem SA sitji enn við sinn keip og tali um það sama og áður. Slíkt hafi hins vegar verið kolfellt í atkvæðagreiðslu meðal blaðamanna og sérstakt að SA geri ekkert með slík skilaboð.

Skilaboðin í hnotskurn eru þessi:  EKKERT fer inn á vefinn milli klukkan 10 og 22 og ljósmyndarar og tökumenn fara ekki í tökur! Verktakar vinna ekki, utanfélagsfólk vinnur ekki, fólk í öðrum stéttarfélögum vinnur ekki.  Verkfallið nær hins vegar ekki til félaga í Félagi fréttamanna á RÚV eða félaga í Rafiðnaðarsambandinu á Sýn.

 

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.