Who makes the news? Norræn ráðstefna um jafnrétti í fréttum

Freyja Steingrímsdóttir • 3. febrúar 2026

Ráðstefnan Who Makes the News? Nordic summit for gender equality in the news fer fram í Kaupmannahöfn 5. febrúar 2026. Þar verður sjónum beint að stöðu kynjajafnréttis í fréttamiðlum á Norðurlöndum, byggt á niðurstöðum Global Media Monitoring Project (GMMP) 2025. Blaðamannafélag Íslands er einn af stuðningsaðilum ráðstefnunnar en hún er haldin á vegum Háskóla Íslands í samstarfi við háskóla og rannsóknastofnanir víðs vegar um Norðurlönd.

Á ráðstefnunni ræðir fræðafólk, blaðamenn, ritstjórar og stefnumótendur þróun síðustu ára, miðla vel heppnuðum verkefnum og efla samstarf um jafnrétti í fréttamiðlum. Viðburðurinn markar jafnframt 30 ár frá Beijing Platform for Action.

Meðal þeirra sem taka þátt frá Íslandi eru:

  • Valgerður Jóhannsdóttir , Háskóla Íslands, sem stýrir ráðstefnunni og flytur opnunarávarp

  • Finnborg Salome Steinþórsdóttir , Háskóla Íslands, sem fjallar um norræna þróun kynjajafnréttis í fréttum

  • Erla Björg Gunnarsdóttir , fyrrverandi ritstjóri fréttastofu Sýnar, sem tekur þátt í pallborðsumræðum með ritstjórum og blaðamönnum

  • Freyja Steingrímsdóttir , framkvæmdastjóri Blaðamannafélags Íslands og Norræna blaðamannasambandsins (NJF), sem fjallar um samstöðu í jafnréttisbaráttunni

 

Hægt er að skrá sig til þátttöku á netinu og fylgjast með í streymi hér.

Frekari upplýsingar um dagskrá má nálgast hér.

 

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.