Yfirgnæfandi stuðningur við verkfallsaðgerðir

Birgir Guðmundsson • 30. október 2019

Blaðamenn í BÍ sem starfa hjá Árvakri, Sýn, Ríkisútvarpinu og Torgi samþykktu með yfirgnæfandi meirihluta að fara í verkfallsaðgerðir til áréttingar kröfum sínum.  Atkvæðagreiðsa fór fram fyrr í dag og voru niðurstöður kynntar fyrir stundu.  Á kjörskrá voru 211 en atkvæði greiddu 131 eða rétt rúm 62%.  Það voru 109 eða 83,2% sem sögðu já við verkfallsaðgerðum,  nei sögðu 17 eða 13% og 5 seðlar voru auðir eða ógildir eða 3,8%.

Þegar niðurstöður lágu fyrir sagði Hjálmar Jónsson formaður BÍ að þessi niðurstaða væri óvenju afgerandi, bæði hvað varðar stuðning við verkfallsaðgerðir og  þátttöku í kosningunni. „Þetta er mjög mikilvægt veganesti fyrir okkur inn í þá baráttu sem framundan er,“ sagði Hjálmar ennfremur.

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.