Yfirlýsing frá stjórn BÍ vegna tilhæfulausrar rannsóknar lögreglu

Freyja Steingrímsdóttir • 26. september 2024

Blaðamannafélag Íslands fagnar því að margra ára tilefnislausri rannsókn lögreglustjórans á Norðurlandi eystra á hendur blaðamönnum sé nú loks lokið. Líkt og BÍ hefur bent á frá upphafi rannsóknarinnar var aldrei grundvöllur til hennar enda beindist hún að þeirri háttsemi blaðamanna að taka við upplýsingum frá heimildarmönnum um samfélagslega mikilvæg málefni og miðla þeim til almennings með ábyrgum hætti. Í því felst ekki refsiverð háttsemi blaðamanna heldur þvert á móti stjórnarskrárvarin frumskylda blaðamanna í lýðræðislegu þjóðfélagi.

Um leið og BÍ fagnar því að málinu sé nú lokið lýsir félagið þungum áhyggjum af því að lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra skuli um margra ára skeið hafa haft blaðamenn til rannsóknar fyrir að sinna starfi sínu. Auk þeirra beinu og verulegu áhrifa sem rannsóknin hefur haft á líf og störf þeirra blaðamanna sem í hlut áttu hefur hún skapað réttaróvissu um störf allra starfandi blaðamanna á Íslandi og haft víðtæk fælingaráhrif. Þótt það sé von BÍ að þetta hafi ekki verið eitt af markmiðum lögreglu með rannsókninni hefur framganga hennar í málinu gert það erfitt að útiloka með öllu að sú sé raunin.

Yfirlýsing sem lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra birti opinberlega fyrr í dag um niðurfellingu málsins er ekki til þess fallin að eyða framangreindum vafa og endurheimta það traust sem fyrri framganga embættisins í málinu hefur grafið undan. Í yfirlýsingunni, sem fá ef nokkur fordæmi eru fyrir í íslenskri réttarframkvæmd, felst ekki hlutlæg greinargerð um lyktir málsins heldur er þar þvert á móti staðhæft að „allir sakborningar í málinu gætu hafa sýnt af sér atferli sem getur flokkast undir brot á [228. og 229. gr. almennra hegningarlaga]“. BÍ lýsir furðu sinni á þessari yfirlýsingu lögreglustjórans á Norðurlandi eystra sem er hvorki í samræmi við niðurstöðu embættisins í málinu né almennar starfsskyldur þess.

BÍ mun aðstoða hlutaðeigandi félagsmenn við að leita réttar síns í málinu kjósi þeir að leita hans og jafnframt leggja mat á hvort og þá hvernig brugðist verði við þessu fordæmalausa máli af hálfu félagsins.

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.