Ábyrð blaðamanna í umræðu um flóttamenn

admin • 11. ágúst 2016

„Þegar kemur að umfjöllun um flóttamenn virðast fjölmiðlar vera að komast upp með gróf brot á faglegum og siðlegum viðmiðum. Á tímum þegar útlendingafælni fer vaxandi í almenri stjórnmálaumræðu vex sú skylda blaðamanna að segja vandaðar fréttir.“

Þetta segir blaðakonan Federica Marsi, sem skrifar áhugaverðan og umhugsunarhvetjandi pistil á vefsíðu Middle East Eye, en hún hefur skrifað um málefni Mið-Austurlanda fyrir marga helstu miðla á Vesturlöndum.  Hún rekur í pistlinum hvernig efnistökin hjá mörgum miðlum valda því að umræðan um flóttamenn er iðulega á villigötum og staðan almennt verri en hún þyrfti að vera.  Pistillinn er áhugaverður m.a. vegna þeirra dæma sem hún tekur um það hvaða sjónarhorn virtir miðlar setja á fréttir (frameing).  Pistillinn er innlegg í stærri umræðu sem m.a. var ýtt af stað af Siðaneti blaðamanna (Journalism Ethical Network), sem gaf út stóra skýrslu um umfjöllun fjölmiðla um flóttamannamál í desember síðastliðnum.

 

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.