EFJ lýsir áhyggjum af LuxLeak máli

admin • 10. ágúst 2016

Evrópusamband blaðamanna (EFJ) hefur lýst verulegum áhyggjum  af þeirri ákvörðun saksóknara í Lúxemborg að gagnáfrýja málarekstri gegn uppljóstrurunum Antoine Deltour og Raphaël Halet blaðamanninum Edouard Perrin í hinu svokallaða „LuxLeaks“ máli, sem snerist um uppljósrtun á gögnum frá PwC endurskoðunarskrifstofunni sem sýndi víðtæk skataundanskot.

Mogens Blicher Bjerregard, formaður EFJ segir það ótrúlegt að stjórnvöld hyggist nota meira af almannafé til að eltast við Perrin og félaga „sem hafi unnið í almannaþágu. Það verði einfaldlega að falla niður þessa áfrýjun.“    Í undirrétti fengu þeir skilorðsbundna dóma og áfrýjunðu þeir  niðurstöðunni og nú hefur ákæruvaldið einnig gert það.

Sjá nánar hér

 

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.