Áfangasigur fyrir Mannréttindadómstóli Evrópu

admin • 6. júní 2014

 Alþjóðasamband blaðamanna (IFJ) og Evrópusamband blaðamanna (EFJ) hafa fagnað niðurstöðu  Mannréttindadómstóls Evrópu að taka til efnismeðferðar fyrir aðaldómstólnum mál finnska ljósmyndarans Markusar Pentikäinen. Markus Pentikäinen var dæmdur af finnskum dómstólum fyrir að hunsa tilmæli lögreglu þegar verið var að rýma svæði vegn mótmæla vegna Asíska-evrópska fundarinw (Asem) sem haldinn var árið 2006, en þá var hann að ljósmynda mótmælin. Það er   Blaðamannafélagið í Finnlandi sem stendur í málarekstrinum fyrir hönd Markusar Pentikäinen gegn finnska ríkinu. Þessi niðurstaða er talinn áfangasigur fyrir málstað blaðamanna í málinu.
  Sjá hér

 

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.