Breytingar víða hjá blaðamönnum í Noregi

admin • 3. júní 2014

Nokkur urgur er í starfsfólki Aftenposten í Noregi vegna áforma stjórnenda um breytt vinnubrögð á ritstjórninni og breytinga í vinnuskipulagi og þar með launamálum.  Tilkynnt hefur verið að starfsmenn verði boðaðir í viðtöl og farið yfir  fyrirhugaðar breytingar og kallað eftir því hvort áhugi sé fyrir áframhaldandi starfi á nýum forsendum eða hvort fólk vilji ræða möguleikann á einhvers konar starfslokasamningum.

Víða á fjölmiðlum í Noregi eru menn nú að ræða um atvinnuöryggi og launamál en rekstur margra fjölmiðla  hefur verið erfiður.

Sjá meira hér

 

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.