Áhugavert námskeið á vegum NJC

Birgir Guðmundsson • 25. febrúar 2021

Nú stendur yfir undirbúningur á áhugverðu námskeiði í nýsköpun í starfrænni fjölmiðlun. Námskeiðið er fyrir þá sem eru með hugmynd sem felur í sér nýjung í notkun stafrænna miðla í snjalltækjum sem notendur eru tilbúnir að greiða fyrir.
Þátttakendur munu læra af þeim fremstu í faginu og fá tækifæri til þess að vinna með þeim í Árósum, New York og Fjölmiðlaþorpinu í Bergen. 
Námskeiðið verður byggt upp á fyrirlesturum, vinnustofum og kennslu sérfræðinga og einnig verða þáttakendur virkir í námskeiðinu og munu kynna sínar hugmyndir og þróunarvinnu.
Norræna endurmenntunarstofnun blaðamanna, NJC/ NJC - Nordisk Journalistcenter stendur fyrir námskeiðinu í samstarfi við  DMJX, Danska blaðamannaháskólann/Danmarks Medie- og Journalisthøjskole,  Media City Bergen  / NCE Media og  Willmore, sem er ráðgjafafyrirtæki á sviði starfrænnar fjölmiðlunar, þróunar og rekstrar.

Rétt er að benda á að unnt er að sækja um stuðnng til að sækja þetta námskeið hjá sjóðum BÍ.

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.