Föstudagsfundir hafnir á ný
Birgir Guðmundsson • 26. febrúar 2021
Föstudagsfundir heldri blaðamanna í húsakynnum BÍ í Síðumúlanum eru nú hafnir á ný eftir að hafa legið niðri í samkomubanninu. Fundirnir munu nú verða eins og áður, nema hvað ýtrustu sóttvarnarreglna verður gætt bæði varðandi fjarlægðir og sprittun og skráningu þeirra sem mæta. Fyrsti fundurinn var haldinn í dag og var vel mætt.



