Allir sérsamningar undirritaðir

Freyja Steingrímsdóttir • 13. júní 2024

Kjarasamningar hafa nú verið undirritaðir við miðla Sameinaða útgáfufélagsins (Heimildin), Myllusetur (Viðskiptablaðið), Bændasamtökin (Bændablaðið) og Torg (nú DV.is) og Blaðamannafélag Íslands þannig lokið gerð allra kjarasamninga í þessari lotu þar til samningarnir renna út 2028.

Blaðamannafélag Íslands annast gerð kjarasamninga fyrir hönd félagsmanna sinna við einstaka útgefendur eða félög þeirra. Nýjasti aðalkjarasamningur BÍ var undirritaðir við Samtök atvinnulífsins þann 19. maí 2024 og var í kjölfarið kynntur félagsmönnum og samþykktur með yfirgnæfandi meirihluta í atkvæðagreiðslu. Samningurinn tók, lögum samkvæmt, gildi strax við undirritun.

Aðalkjarasamningur SA og BÍ gildir fyrir félagsmenn starfandi á miðlum Árvakurs, Sýnar og RÚV, auk félagmanna starfandi á miðlum sem ekki eru með sérsamning. Einnig var undirritaður kjarasamningur FF og RÚV gildir fyrir félagsmenn BÍ á RÚV sem taka kjör eftir samningi FF.  BÍ er að auki með sérkjarasamning við miðla Sameinaða útgáfufélagsins (Heimildin), Myllusetur (Viðskiptablaðið), Bændasamtökin (Bændablaðið) og Torg (nú DV.is). 

Nú tekur við kynning á sérsamningum miðlanna og verða í kjölfarið greidd atkvæði um þá á vinnustöðum.

Kjarasamningur BÍ og Sameinaða útgáfufélagsins
Kjarasamningur BÍ og Fjölmiðlatorgs
Kjarasamningur BÍ og Mylluseturs
Kjarasamningur BÍ og Bændasamtakanna

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.