Sérsamningar samþykktir samhljóða

Freyja Steingrímsdóttir • 20. júní 2024

Kjarasamningar Blaðamannafélags Íslands við Sameinaða útgáfufélagið (Heimildin), Myllusetur (Viðskiptablaðið) og Fjölmiðlatorg (DV) voru samþykktir með öllum greiddum atkvæðum í atkvæðagreiðslum í gær, 19. júní.

Niðurstöðurnar hafa verið tilkynntar viðsemjendum BÍ og til Ríkissáttasemjara, sem heldur utan um gagnagrunn allra kjarasamninga.

Samningarnir byggja á grunni Stöðugleikasamningsins sem gerður var milli SA og sambanda og félaga ASÍ í mars sl. Samkvæmt samningunum taka launahækkanir gildi um mánaðarmótin og gilda afturvirkt frá 1. febrúar.

Meira um kjarasamningana hér.

Uppfært 26.6.2024: Atkvæðagreiðsla um kjarasamning BÍ við Bændasamtökin fór fram 26. júní eftir að samkomulag náðist um viðauka um styrk til blaðamanna vegna kaupa á ljósmyndabúnaði. Samningurinn var samþykktur með öllum greiddum atkvæðum.

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.